iKort hagnaðist um 1 milljón króna á síðasta rekstrarári, samanborið við 15 milljóna króna hagnað árið áður. Rekstrartekjur félagsins námu 52 milljónum króna. Eignir námu tæplega 26 milljónum króna og eigið fé félagsins nam rúmlega 3 milljónum króna.

Laun og launatengd gjöld námu 21 milljón króna en að meðaltali störfuðu tveir starfsmenn hjá fyrirtækinu í fyrra. Ingólfur Guðmundsson er framkvæmdastjóri félagsins.