Hagnaður Íslandssjóða jókst úr 436 milljónum króna í 278 milljónir króna eða um 58% milli áranna 2018 og 2019. Íslandssjóðir eru sjóðsstýringarfyrirtæki Íslandsbanka.

Hagnaður verðbréfa- og fjárfestingasjóða félagsins jókst úr 5,3 milljörðum í 10,4 milljarða milli ára. Meðalávöxtun sjóðanna var 11%. Hrein eign sjóðanna, sem eru 22 voru 170 milljarðar króna í lok árs.

Hreinar rekstrartekjur námu 1,7 milljarði króna  samanborið við tæplega 1,5 milljarða árið áður Rekstrargjöld námu 1,17 milljörðum samanborið við 1,12 milljarða á fyrra ári. Eigið fé í árslok 2019 var 2,43 milljarðar miðað við 2,28  í ársbyrjun.

21 starfsmaður starfar hjá Íslandssjóðum en meðallaun á mánuði námu um 1,7 milljónum króna og eru svo til óbreytt milli ára.

Kjartan Smári Höskuldsson, framkvæmdastjóri Íslandssjóða kveðst sáttur við árið. „Það er sérstaklega ánægjulegt þegar svo vel tekst til að allir viðskiptavinir okkar njóta góðrar ávöxtunar en meðalávöxtun sjóða sem við stýrum var yfir 11% á árinu 2019. Einnig náðum við þeim sjaldséða árangri að skila bestu ávöxtun á landsvísu í þremur flokkum af fjórum samkvæmt flokkun Keldunnar. Árið 2020 fer einnig vel af stað en margt bendir til að ávöxtun skuldabréfa verði lægri í ár en hún hefur verið undanfarið. Því eru viðskiptavinir að dreifa sparnaði sínum á milli eignaflokka og velja bæði erlenda og innlenda hlutabréfasjóði í bland við skuldabréf og innlán. Eignadreifing er alltaf skynsamlegur kostur í sparnaði sem hugsaður er til lengri tíma,“ segir Kjartan Smári.