Hagnaður verðbréfa- og fjárfestingarsjóða í stýringu Íslandssjóða á síðasta ári, sem renna til viðskiptavina félagsins í formi ávöxtunar, nam 6,7 milljörðum á árinu 2017.

Til samanburðar nam hagnaður sjóðanna 3,5 milljörðum árið áður, svo aukningin milli ára nam 89%. Ávöxtun sjóða félagsins var almennt góð á árinu og skiluðu allir tíu skuldabréfasjóðir félagsins jákvæðri raunávöxtun.

Einn stærsti sjóður félagsins, IS Ríkisskuldabréf löng, skilaði bestu ávöxtun allra innlendra sjóða á árinu og fleiri sjóðir Íslandssjóða voru í efstu sætum í sínum flokki samkvæmt flokkun Keldunnar.

Hagnaður fyrirtækisins nam 183 milljónum

Íslandssjóðir hf. högnuðust um 183 milljónir árið 2017, sem er 89% aukning milli ára, og námu hreinar rekstrartekjur 1.354 milljónum. Árið 2016 hagnaðist félagið um 97 milljónir króna, en rekstrartekjur þess árs námu 1.171 milljón króna. Rekstrargjöld félagsins fóru úr 1.049 milljónum króna árið 2016 í 1.1.25 milljónir króna árið 2017, sem er aukning um 7%.

Árið einkenndist af vexti og uppbyggingu í starfsemi félagsins en tveir nýir sjóðir voru stofnaðir á árinu segir í fréttatilkynningu. Í heildina eru sjóðir félagsins nú 27 talsins. Í árslok námu hreinar eignir þeirra 123,9 milljörðum króna. Eigið fé Íslandssjóða nam 2.180 milljónum króna í lok ársins 2017, en í ársbyrjun nam hún 2.094 milljónum króna, sem er aukning um 4%. Eiginfjárhlutfall félagsins var 62%.

Hagnaður samhliða vexti

Kjartan Smári Höskuldsson, framkvæmdastjóri Íslandssjóða segir árið hafa einkennst af vexti í umsvifum félagsins og sé ánægjulegt að sjá hagnað aukast samhliða honum. „Rekstur Íslandssjóða gekk vel á árinu, ávöxtun sjóða var afar góð sem skilar sér beint til þeirra 10 þúsund viðskiptavina sem ávaxta sparnað sinn í sjóðum félagsins,“ segir Kjartan Smári.

„Öflugt eignastýringarteymi gekk til liðs við Íslandssjóði um mitt árið, tveir nýir sjóðir voru stofnaðir og fleiri eru í undirbúningi. Það eru því spennandi tímar framundan hjá Íslandssjóðum." Nú starfa hjá félaginu 20 sérfræðingar í eignastýringu, níu konur og 11 karlar. Alls voru eignir í stýringu hjá Íslandssjóðum 251,2 milljarðar í árslok.