Á aðalfundi félagsins í gær kom fram að hagnaður KEA á síðasta ári nam 943 milljónum króna eftir reiknaða skatta en var 671 milljónir árið áður, svo hagnaðurinn jókst um 272 milljónir á milli ára. Tekjur námu tæpum 1.115 milljónum króna og hækkuðu einnig um 272 milljónir á milli ára að því er segir í fréttatilkynningu. Eigið fé um síðustu áramót var rúmir 7,2 milljarðar króna og heildareignir tæpir 7,7 milljarðar á sama tíma. Eiginfjárhlutfall er um 95%.

Mörg þeirra fyrirtækja sem KEA á eignarhluti í gengu vel á síðasta ári og endurspeglast það í um 776 milljóna króna jákvæðri gangvirðisbreytingu fjáreigna og var ávöxtun þeirra eigna ásættanleg á síðasta ári. Á árinu fjárfesti félagið m.a. í auknum hlut í fjárfestingasjóðnum Tækifæri sem og Sparisjóði Höfðhverfinga.

Meirihluti íbúa félagsmenn

Arðsemi eigenda félagsins er einnig góð sé horft til þeirra viðskiptakjara sem eigendur njóta í gegnum KEA kortið en áætluð afkoma af þeim viðskiptakjörum er 500 milljónir króna umfram reikningshaldslega afkomu á síðasta ári. Félagsmönnum KEA heldur áfram að fjölga og eru þeir nú tæplega 20.000 eða um 53% allra íbúa á félagssvæði KEA sem eru Eyjafjarðar- og Þingeyjarsýslur.

Á aðalfundi félagsins í gær voru Birgir Guðmundsson, Hildur Ösp Gylfadóttir og Ólafur Jónsson endurkjörin í stjórn félgasins.