Hagnaður Lánasjóðs sveitarfélaga ohf. á fyrstu sex mánuðum ársins nam 519 milljónum króna, miðað við 941 milljón á sama tíma í fyrra. Er það í samræmi við væntingar sjóðsins, segir í tilkynningu um uppgjörið til Kauphallar. Lækkun hagnaðar skýrist aðallega af gengisþróun evrunnar, sem var sérstaklega hagstæð sjóðnum árið 2010.

Meginhlutverk sjóðsins er að tryggja sveitarfélögum, stofnunum þeirra og fyrirtækjum lánsfé á hagstæðum kjörum. Útborguð langtímalán á tímabilinu námu 3.495 milljónum króna samanborið við 2.014 milljónir á sama tímabili í fyrra.

Vegið eiginfjárhlutfall er 51% og lækkar úr 78% frá áramótum. Sjóðurinn segir að skýring á þeirri lækkun felist í nýsettum reglum FME um eiginfjárkröfur og áhættugrunn fjármálafyrirtækja. Ef að núverandi aðferð hefði verið beitt um áramót hefði eiginfjárhlutfall sjóðsins verið 48% um síðustu áramót. Breytingarnar tóku gildi 13. apríl 2011.

„Aðstæður á lánsfjármörkuðum munu hafa úrslitaáhrif á möguleika sjóðsins til að koma til móts við lánsfjárþörf sveitarfélaganna á árinu. Allt kapp verður lagt á að tryggja lánshæfi sjóðsins og viðhalda því trausti sem fjárfestar hafa á skuldbindingum hans.

Lánasjóðurinn mun að öðru leyti starfa í meginatriðum líkt og undanfarin ár þar sem stefnt hefur verið að eflingu á starfsemi hans og aukinni þjónustu við sveitarfélögin með því að nýta gott lánstraust sjóðsins til að útvega sveitarfélögunum lánsfé á hagstæðum kjörum,“ segir í tilkynningu.