Afkoma Landsbankans var jákvæð um 27,2 milljarða króna eftir skatta á árinu 2010. Bankinn birti ársuppgjör sitt í dag.

Arðsemi eigin fjár var 17,3%. Til samanburðar nam hagnaður ársins 2009 14,3 milljörðum króna og var arðsemi eigin fjár þá 10,0%. Í fréttatilkynningu frá bankanum kemur fram að sérstök gjaldfærsla er í reikningnum til að mæta dómum sem fallið hafa á árinu 2010 og snemma áárs 2011 um lögmæti lánasamninga erlendra lána bæði hjá einstaklingum og fyrirtækjum. Hún nemur 18,1 milljarði króna.

Sérstök gjaldfærsla er í reikningnum til að mæta dómum sem fallið hafa á árinu 2010 og snemma árs 2011 um lögmæti lánasamninga erlendra lána hjá bæði einstaklingum og fyrirtækjum.  Hún nemur 18,1 milljarði króna.

Eiginfjárhlutfall (CAD) Landsbankans er nú 19,5% og hefur hækkað um 4,6% á árinu.

Helstu stærðir úr rekstri og efnahag í árslok 2010:

  • Arðsemi eigin fjár var 17,3%
  • Hagnaður eftir skatta nam 27,2 milljörðum króna
  • Skattar námu 8,2 milljörðum króna
  • Vaxtamunur af meðalstöðu heildareigna var 2,3%
  • Eigið fé bankans var 185 milljarðar króna.
  • Eiginfjárhlutfall (CAD hlutfall) var 19,5% samanborið við 17,3% við lok þriðja ársfjórðungs og 14,9% í árslok 2009
  • Heildareignir bankans námu 1,081 milljörðum króna

Steinþór Pálsson bankastjóri Landsbankans segir í tilkynningu:

,,Landsbankinn tók miklum breytingum á árinu 2010 og er enn að breytast. Ný stefna bankans sem samþykkt var síðastliðið haust setur fram metnaðarfulla framtíðarsýn. Í henni er lögð áhersla á úrvinnslu skuldavanda heimila og fyrirtækja og að bæta þjónustu bankans til hagsbóta fyrir viðskiptavini. Við viljum tryggja ávinning af rekstri bankans bæði fyrir samfélag og eigendur og laða að honum úrvals starfsfólk.  Markmiðið sem við vinnum eftir er skýrt; við viljum vera traustur samherji viðskiptavina í fjármálum og standa undir þeirri ábyrgð að vera Landsbankinn þinn.“

,,Afkoman á árinu 2010 var góð og bankinn stendur styrkum fótum. Þrengingar og óvissa í efnahagsmálum eru viðvarandi og því er mikilvægt að Landsbankinn búi yfir miklum styrk, þannig að hann geti veitt öfluga fjármálaþjónustu og verið það hreyfiafl í samfélaginu sem starfsmenn hans hafa einsett sér að hann verði.“