Tekjur hjá Marel á öðrum ársfjórðungi námu 218,3 milljónum evra og hækkuðu milli ára frá 169,8 milljónum árið 2014. Hagnaður annars ársfjórðungs 2015 nam 19,5 milljónum evra og hækkaði verulega milli ára, hann nam 0,8 milljónum evra í fyrra. Hagnaður á hlut var 2,71 evru sent. Þetta kemur fram í afkomutilkynningu Marels .

Leiðrétt EBITDA á öðrum ársfjórðungi var 37,2 milljónir evra sem er 17,1% af tekjum. EBITDA var 38,1 milljón evra sem er 17,5% af tekjum og hækkaði milli ára. Leiðréttur rekstrarhagnaður á öðrum ársfjórðungi 2015 var 29,7 milljónir evra, sem er 13,6% af tekjum og hækkaði um 19 milljónir evra milli ára.

Segir í tilkynningnniu að gott jafnvægi sé á milli pantana í öðrum ársfjórðungi á milli uppbyggingaverkefna, endurnýjunar-verkefna og viðhaldsverkefna og söluverkefni dreifast vel á heimsvísu. Pantanastaða í fisk- og kjúklingaiðnaði er góð en markaðsaðstæður í áframvinnslu og kjöti hafa gefið lítillega eftir. Búast má við að tekjur í þriðja ársfjórðungi verði lægri en í öðrum ársfjórðungi vegna árstíðabundinna áhrifa og tímasetningu á afhendingu búnaðar til viðskiptavina. Heilt yfir eru markaðsaðstæður góðar.

Fyrri helmingur ársins 2015 var góður fyrir Marel með góðri aukningu í tekjum og hagnaði. Tekjur á fyrri helmingi ársins námu 428 milljónum evra og nam leiðréttur rekstrarhagnaður (e. EBIT) 12,5% af tekjum (53,5 milljónir evra) samanborið við 325 milljónir evra og 4,7% af tekjum á fyrri helmingi síðasta árs.

“Fyrri hluti ársins einkenndist af miklum tekjuvexti og afkomubata. Tekjur félagsins á fyrstu sex mánuðum ársins nema 428 milljónum evra og er rekstrarhagnaður félagsins 12,5% af tekjum, að teknu tilliti til einskiptisliða. Við erum stolt af árangrinum sem byggir á sterku vöruframboði, nánum tengslum við viðskiptavini og góðum markaðsaðstæðum. Með nýsköpun og markvissri markaðssókn ætlar Marel sér að viðhalda stöðu félagsins sem leiðandi aðila á heimsvísu í þróun og framleiðslu á háþróuðum búnaði og kerfum til vinnslu á fiski, kjöti og kjúklingi. Fjárhagsstaða félagsins er firna sterk sem gefur okkur ýmis tækifæri til vaxtar," segir Árni Oddur Þórðarson, forstjóri Marel í tilkynningunni.