Hagnaður Morgans Stanley dróst saman um 70% á fjórða fjórðungi síðasta árs. Ástæðan er mikill lögfræðikostnaður.

Afkoman var þó skárri en búist hafði verið við og virði hlutabréfa hækkaði um 3,34% í viðskiptum í morgun. Verð hlutabréfa var í morgun 33,08 dalir á hlut

Hagnaður Morgan Stanley var 181 milljón dala á fjórða fjórðungi en var 594 milljónir fyrir ári síðan.