Hagnaður MP banka á fyrstu níu mánuðum ársins nam 470 milljónum króna fyrir skatta, samanborið við 847 milljóna tap árið 2011. Hagnaður eftir skatta nam 372 milljónum. Þriðji ársfjórðungur skilaði bestu afkomu ársins en hagnaður á þeim ársfjórðungi nam 270 milljónum fyrir skatta. Eftir skatta nam hagnaðurinn 253 milljónum.

Bankinn tilkynnti um uppgjörið í dag. Í tilkynningu kemur fram að heildareignir jukust um 46% fyrstu 9 mánuði ársins og námu 73,2 milljörðum króna. Útlán hafa vaxið um 78% og námu 23,6 milljörðum í lok tímabilsins. Innlán jukust um 46% á tímabilinu og námu 53,5 milljörðum, að meðtöldum peningamarkaðsinnlánum.

Lausafjárstaða bankans er sögð sterk en handbært fé eða ígildi þess nemur 29,6 milljörðum. Hækkun frá áramótum nemur 156%.

Rekstrartekjur námu tæpum 3 milljörðum króna. Hreinar vaxtatekjur voru 1.303 milljónir á fyrstu níu mánuðum ársins og hreinar þóknanatekjur námu 983 milljónum. Hreinar fjárfestingartekjur voru 478 milljónir. Hlutdeildarfélög skiluðu 217 milljóna hagnaði.

„MP banki er að vaxa samkvæmt metnaðarfullum áætlunum og gott betur því nú hefur afkoma bankans verið jákvæð fjóra ársfjórðunga í röð. Við ætlum okkur að vera skýr fyrsti valkostur fyrir atvinnulífið og erum á góðri leið að því markmiði. Við höfum aukið útlán okkar til atvinnulífsins um 210% á rúmu ári eða um 16 milljarða,“ - að sögn Sigurðar Atla Jónssonar, forstjóra MP banka,“ segir Sigurður Atli Jónsson, forstjóri MP, í tilkynningu.

Stefnt er að því að auka hlutafé í MP banka um tvo milljarða króna. „Við gerum ráð fyrir því að útlán okkar til fyrirtækja muni aukast umtalsvert á næstunni nú þegar fyrirtæki sjá fram á að losna úr samningum við aðrar fjármálastofnanir og gengislán verða endurreiknuð í síðasta sinn. Útlánageta bankans er í dag um 25-30 milljarðar en mun aukast í um 50 milljarða eftir fyrirhugaða 2 milljarða hlutafjáraukningu. Hlutafjáraukningin mun gera bankanum kleift að vaxa í takt við þarfir atvinnulífsins og geta boðið nánast öllum fyrirtækjum landsins heildarfjármögnun,“ - segir Sigurður Atli.