Ársvelta Norðlenska matborðsins ehf., eða Norðlenska, var tæpir 5,2 milljarðar króna á síðasta ári. Það er veltuaukning um rúm 9,8% á milli ára. Hagnaður ársins var 138,4 milljónir króna og minnkar um 50 milljónir frá fyrra ári. Eigið fé Norðlenska er nú 631,9 milljónir króna og eiginfjárhlutfallið 19,2%. Á aðalfundi félagsins 28. febrúar síðastliðinn var samþykkt að greiða eigandanum, Búsæld ehf., félagi 525 bænda, arð að upphæð 15 milljónum króna. Það samsvarar að meðaltali um 28 þúsund á hvern bónda.

Hagnaður ársins fyrir afskriftir og fjármagnsliði, EBITDA hagnaður, var 283,2 m. kr. samanborið við 325,4 m. kr. árið 2012. Heildar eignir Norðlenska voru í árslok  3.290,4 milljónir króna.

Að sögn Sigmundar Ófeigssonar, framkvæmdastjóra Norðlenska, var reksturinn í góðu jafnvægi og sala gekk vel á vörum Norðlenska innanlands sem utan. Þegar leið á árið dró heldur úr eftirspurn, sérstaklega á lambakjöti og grísakjöti. Útflutt magn var mjög sambærilegt við síðastliðin ár en afkoman þó heldur lakari vegna styrkingar íslensku krónunnar. Verð fyrir hinar ýmsu aukaafurðir var hins vegar mjög gott á árinu. Norðlenska hefur lagt aukna áherslu á að fullnýta sláturgripi, aukaafurðir eru allar fluttar út og skiluðu þau viðskipti viðunandi hagnaði.

Hjá Norðlenska sem er með starfstöðvar á Akureyri, Húsavík, Höfn og í Reykjavík starfa rúmlega 180 starfsmenn og í sauðfjársláturtíð fjölgar þeim um 140. Er þá heildar starfsmannafjöldi rúmlega 320.