Hagnaður Orkuveitu Reykjavíkur (OR) nam 7,3 milljörðum króna á fyrstu sex mánuðum 2017 samkvæmt árshlutareikningi sem stjórn OR samþykkti í dag. Jókst hagnaður OR um 2,3 milljarða króna frá sama tímabili í fyrra.

Í fréttatilkynningu frá OR kemur fram að lækkandi rekstrarkostnaður auk hagstæðra ytri skilyrða hafi verið meginástæða góðrar afkomu á tímabilinu.

Innan samstæðu Orkuveitu Reykjavíkur eru, auk móðurfélagsins, Veitur, Orka náttúrunnar og Gagnaveita Reykjavíkur. Kostnaður við rekstur fyrirtækjanna lækkaði frá fyrra ári um 152 milljónir króna. Þrátt fyrir samningsbundnar launahækkanir þá vógu þar á móti minni kostnaður við raforkuflutning og raforkukaup til endursölu. Það síðarnefnda má meðal annars rekja til aukinnar framleiðslu ON í Hellisheiðarvirkjun eftir að Hverahlíðarlögn var tekin í notkun að því er segir í tilkynningunni.

Í tilkynningunni kemur enn fremur fram að tekjur samstæðunnar hafi aukist þrátt fyrir að verð á ýmissi veituþjónustu hafi verið lækkað í byrjun árs. Hækkandi álverð, sem er viðmiðun í raforkusölu til stórnotenda, hefur þar áhrif og aukin umsvif í samfélaginu. Reiknað verðmæti langtímasamninga á raforku til álbræðslu hafa einnig vaxið með hækkuðu álverði. Hækkunin reiknast samstæðunni til tekna og skýrir það hagnað tímabilsins að verulegu leiti, eða sem nemur 4,9 milljörðum af 7,3 milljarða króna hagnaði.

Í tilkynningunni segir Bjarni Bjarnason, forstjóri OR:

„Þessi niðurstaða er góð fyrir fyrirtækið, eigendur þess og viðskiptavini. Fjárhagsstaða Orkuveitu Reykjavíkur heldur áfram að styrkjast og sú sparnaðarmenning sem byggð hefur verið upp stuðlar að því að fólk njóti grunnþjónustu fyrirtækjanna við sem lægstu verði.

OR siglir þó ekki lygnan sjó. Hluta afkomubatans í þessu uppgjöri má rekja til þátta sem við stýrum ekki á borð við álverð. Sá hagnaður er því fugl í skógi en ekki í hendi. Þá er að koma á daginn að við eigum fyrir höndum dýrar aðgerðir vegna þeirra alvarlegu rakaskemmda sem fyrst komu í ljós árið 2015 í hluta skrifstofuhúsnæðis fyrirtækisins. Á næstunni þurfum við að eiga gott samtal um hvað skynsamlegast er að gera í þeim efnum."