Hagnaður Össurar á fyrsta ársfjórðungi nam 11 milljónum dala, eða um 1,5 milljörðum íslenskra króna, á fyrsta fjórðungi 2021 samanborið við 7 milljónir dala á sama tímabili árið áður og jókst því um 62% milli ára. Hagnaðurinn í ár nam um 7% af veltu fyrirtækisins.

Sala Össurar á fyrsta ársfjórðungi nam 161 milljón dala, eða um 21 milljarði króna. Í fjárfestakynningu fyrir árshlutauppgjörið kemur fram að salan hafi verið hæg í janúar og febrúar en sótt í sig veðrið í marsmánuði. Innri vöxtur var jákvæður um 2%. Sala á stoðtækjum jókst um 3% en innri vöxtur var neikvæður um 1% á spelkum og stuðningsvörum.

Rekstrarhagnaður fyrir afskriftir (EBITDA) var 18% af veltu félagsins á fyrstu þremur mánuðum ársins samanborið við 14% á fyrsta ársfjórðungi síðasta árs.

„Í takt við væntingar, sjáum við jákvæða þróun í sölu félagsins en salan jókst sérstaklega þegar leið á ársfjórðunginn. Við erum ánægð að sjá jákvæðan innri vöxt í sölu stoðtækja á fyrsta ársfjórðungi og aukna arðsemi í rekstri,“ segir Jón Sigurðsson , forstjóri Össurar, í fréttatilkynningu.

„Í kjölfar bólusetninga hafa sumir markaðir opnað en margir af okkar helstu mörkuðum eru enn undir áhrifum af takmörkunum sem hafa verið sett til að hamla útbreiðslu á faraldrinum og óljóst er hversu lengi áhrifin munu vara. Ekki er þó gert ráð fyrir að langtímahorfur á stoðtækja- og spelku- & stuðningsmarkaðinum breytist og ætla má að áhrifin af faraldrinum munu leiða til einhverrar uppsafnaðrar eftirspurnar,“ segir Jón.

Á fyrsta ársfjórðungi gekk Össur frá kaupum á fyrirtækjum með alls 11 milljónir dala, eða um 1,4 milljarða króna, í ársveltu.

Handbært fé frá rekstri nam 20 milljónum dala, eða um 2,5 milljörðum króna, sem jafngildir um 12% af veltu á fyrsta ársfjórðungi samanborið við 31 milljón dala árið áður.

„Árið 2021 markar ánægjuleg tímamót í sögu Össurar en í ár eru 50 ár frá stofnun félagsins. Við höldum áfram að fá viðurkenningu fyrir störf okkar, eins og frá Alþjóðahugverkastofnuninni fyrir forystu okkar í tækniþróun . Við erum einnig stolt af því að fagna afmælinu með því að verða kolefnishlutlaus á árinu og sýna þannig enn frekar félagslega ábyrgð og stuðla að sjálfbærri þróun. Ég vil þakka öllum starfsmönnum og viðskiptavinum félagsins fyrir þrautseigju, sveigjanleika og jákvæðan teymisanda á þessum fordæmalausu tímum,“ segir Jón að lokum.