Rekstrarhagnaður af starfsemi RARIK fyrir fjármagnsliði (EBIT) á árinu 2010 var 1.787 milljónir króna, samkvæmt ársreikningi félagsins sem var birtur í dag. Það er um 3% aukning frá fyrra ári og í samræmi við áætlanir, að því er kemur fram í tilkynningu um afkomuna. „Vegna styrkingar krónunnar var hagnaður ársins mun meiri en 2009 sem rekja má til verulegra breytinga á fjármagnsliðum, en niðurstaða fjármagnsliða var jákvæð um 56 milljónir króna, þrátt fyrir að vaxtaberandi skuldir félagsins hafi verið 15.712 milljónir króna í árslok 2010. Áhrif gengisbreytinga voru jákvæð um 833 milljónir.“

Úr tilkynningu um afkomu RARIK 2010:

„Rekstrartekjur hækkuðu um rúm 11% frá árinu 2009 og voru 9.694 milljónir króna, en rekstrargjöld hækkuðu um rúm 13% og voru 7.907 milljónir króna.

Fjármagnsgjöld á árinu 2010 voru eins og áður segir jákvæð um 56 milljónir króna sem má að stórum hluta rekja til styrkingar krónunnar, bæði hvað varðar erlenda lánasamninga og afleiðusamninga, en einnig vegna lágra vaxta á erlendum lánum. Í áætlunum ársins var ekki gert ráð fyrir breytingu á gengi krónunnar.

Samkvæmt rekstrarreikningi var hagnaður á árinu 2.518 milljónir króna en rekstrarhagnaður fyrir afskriftir, fjármagnsliði og skatta (EBITDA) var 3.054 milljónir króna eða 31,5% af veltu tíma-bilsins og hefur EBITDA félagsins hækkað um rúm 7,4% frá árinu 2009. Handbært fé frá rekstri var 2.067 milljónir króna.

Áhrif Landsnets, sem er hlutdeildarfélag RARIK, á afkomu ársins voru jákvæð um 802 milljónir króna.

Samkvæmt efnahagsreikningi voru heildareignir RARIK í árslok 37.032 milljónir króna, heildarskuldir námu 18.718 milljónum króna, eigið fé var 18.314 milljónir króna og eiginfjárhlutfall því 49,5%.

Ársreikningur RARIK ohf. er gerður samkvæmt alþjóðlegum reikningsskilastöðlum.

Horfur

Horfur í rekstri RARIK á árinu 2011 eru góðar, en afkoman á næstu tímabilum ræðst hins vegar af almennri þróun efnahagsmála, verðlagsþróun og gengi krónunnar. Áætlanir ársins 2011 gera ráð fyrir hagnaði af rekstri félagsins. Gjaldskrá fyrir dreifingu var hækkuð um áramótin, en skv. áætlunum er ekki gert ráð fyrir hækkunum umfram almennar verðlagsbreytingar. Fyrirtækið hefur þó ekki nýtt sér að fullu tekjuheimildir í raforkulögum við gjaldskrárgerð. Á það einkum við um gjaldskrá í dreifbýli. Vextir erlendra lána hafa verið hagstæðir undanfarin misseri og gert er ráð fyrir að þeir haldist sambærilegir út árið 2011.

Gert er ráð fyrir aukningu í fjárfestingum í dreifikerfum frá fyrra ári, en síðustu tvö ár hefur fjárfestingum verið frestað samhliða niðurskurði í rekstri félagsins vegna stöðu efnahagsmála. Þrátt fyrir þessa aukningu er ekki þörf á nýrri fjármögnun á næstu fjórum árum vegna hefðbundinna verkefna fyrirtækisins.

Á árinu 2011 er gert ráð fyrir að orkusala og dreifing aukist lítillega, sem er í samræmi við þróun síðustu ára.“

Ársreikning RARIK má sjá hér .