Hagnaður Reita fasteignafélags nam 2.910 milljónum króna á fyrri helmingi ársins, en hann nær tvöfaldaðist milli ára. Á sama tíma í fyrra nam hann 1.672 milljónum króna.

„Uppgjör Reita fyrir tímabilið janúar til júní 2015 lýsir áfram þeim mikla stöðugleika sem félagið býr við. Það er mat stjórnenda að afkoma fyrstu sex mánuði ársins hafi verið í takti við væntingar þeirra og að áætlanir hafi að stærstum hluta gengið eftir. Þó voru uppi væntingar um bætta nýtingu eignasafnsins milli ára, en dregið hefur úr þeim væntingum, aðallega vegna óróa á vinnumarkaði fyrri hluta ársins. Nýtingarhlutfallið reiknað af tekjum er þó áfram mjög gott, eða rúmlega 95%. Arðsemi eigin fjár félagsins á tímabilinu nam 14% á ársgrundvelli,“ segir Guðjón Auðunsson, forstjóri Reita.

Leigutekjur jukust milli ára

Leigutekjur fyrri árshelmings námu 4.322 milljónum króna samanborið við 4.173 milljónir króna á sama tímabili árið áður. Fram kemur í tilkynningu að góð fylgni leigutekna við verðlag haldi áfram en að auki skýri eignir sem keyptar hafa verið hluta hækkunar á milli ára. Rekstarkostnaður fjárfestingareigna nam 1.070 milljónum króna samanborið við 927 milljónir króna á sama tímabili árið 2014. Tímasetning og umfang viðhalds og endurbóta milli ára og breytingar í fasteignagjöldum skýra nær alla breytingu á milli ára.

Stjórnunarkostnaður félagsins jókst lítillega milli ára og nam 213 milljónum króna samanborið við 201 milljón króna árið áður. Á fyrsta ársfjórðungi var gjaldfærður 87 milljóna króna kostnaður sem tengist skráningu hlutabréfa félagsins og skuldabréfaflokks þess í kauphöll í byrjun aprílmánaðar. Rekstrarhagnaður fyrir matsbreytingu, fjármagnsliði og kostnað við skráningu var 3.039 milljónir króna samanborið við 3.045 milljónir króna árið áður.

Keyptu Hótel Ísland

Hækkun á mati fjárfestingareigna nam 2.759 milljónum króna samanborið við 1.311 milljónir króna á sama tímabili árið áður. Á fyrri árshelmingi fjárfesti félagið í fjárfestingareignum fyrir tæpa 4.000 milljónir króna en stærsta fjárfestingin var félag sem er eigandi Hótels Íslands að Ármúla 9. Seldar eignir á tímabilinu nema rúmum 1.200 milljónum króna.

Fjármagnsgjöld árshlutans námu 2.061  milljónum króna samanborið við 2.221 milljón krónur fyrir sama tímabil árið áður. Meðalkjör af verðtryggðri fjármögnun félagsins eru um 4,0%. Litlar breytingar voru á samsetningu skulda félagsins á fyrri árshelmingi og námu vaxtaberandi skuldir 57.637 milljónum króna í lok fjórðungsins samanborið við 55.204 milljónir króna í lok árs 2014.

„Í byrjun apríl sl. gekk félagið frá kaupum á félaginu Reitir Hótel Ísland ehf., sem á fasteignina að Ármúla 9. Hið nýja dótturfélag er hluti af samstæðu félagsins frá og með 1. apríl 2015. Reitir hafa ekki fjárfest í öðrum stærri fjárfestingaeignum það sem af er árinu, en stöðugt er unnið að minni og stærri endurbótaverkefnum innan eignasafnsins í þeim tilgangi að styrkja safnið og bæta gæði þess. Það er áfram stefna Reita að fjárfesta í nýjum eignum sem falla að fjárfestingastefnu félagsins og tryggja eigendum þess ásættanlega ávöxtun,“ segir Guðjón.

Nær óbreyttar rekstrarhorfur

Í tengslum við birtingu afkomu fyrsta ársfjórðungs gaf félagið út afkomuhorfur fyrir árið í heild. Áætlað var að rekstrartekjur yrðu á bilinu 8.850 til 8.950 milljónir króna og að rekstrarhagnaður fyrir matsbreytingu og fjármagnsliði yrði á bilinu 6.250 til 6.350 milljónir króna.

Engar stórar breytingar hafa átt sér stað í rekstrarhorfum fyrir árið að undanskildum þeim eignum sem seldar voru á öðrum ársfjórðungi. Vegna þeirrar sölu má vænta að tekjur og rekstrarhagnaður ársins 2015 verði við neðri mörk þess bils sem gefið var upp fyrir árið.

Árshlutauppgjör Reita.