Hagnaður Samherja á síðasta ári nam 8,7 milljörðum króna samanborið við 9,8 milljarða króna hagnað árið 2017. Lægri hagnaður í ár er aðallega tilkominn vegna mikils söluhagnaðar árið 2017 upp á 4,5 milljarða króna samanborið við 140 milljón krónur á síðasta ári. Hagnaður fyrir afskriftir og fjármagnsliði jókst hins vegar um einn milljarð króna milli ára og nam 7,7 milljörðum króna sem jafngildir 18% af veltu.

„Búið er að einfalda samstæðu Samherja og er þetta fyrsta árið þar sem Samherji hf. heldur einungis utan um starfsemi okkar á Íslandi og í Færeyjum,“ er haft eftir Þorsteini Má Baldvinssyni forstjóri Samherja í tilkynningu með uppgjörinu.

Rekstrartekjur voru 43,4 milljarðar króna sem er ríflega þremur milljörðum króna meiri en árið á undan. Rekstrargjöld voru 35,6 milljarðar í fyrra en 33,3 milljarðar króna árið 2017.

Eignir félagsins námu 89,3 milljörðum króna samanborið við 79,3 milljarða árið 2017. Þar af voru 72,7 milljarðar króna fastafjármunir og 16,7 milljarðar króna veltufjármunir. Eiginfjárhlutfall var 67% í lok síðasta rekstrarárs samanborið við 62% árið 2017.

Í tilkynningu með uppgjörinu kemur fram að Samherji og starfsmenn hafi greitt um 4,7 milljarða til hins opinbera á Íslandi árið 2018.

„Við höfum haldið áfram uppbyggingu á innviðum Samherja. Nýlega var sjósettur nýr togari Útgerðarfélags Akureyringa sem fær nafnið Harðbakur. Framkvæmdir við nýja fiskvinnslu á Dalvík halda áfram af fullum krafti og stefnt er á að geta hafið vinnslu í nýju og glæsilegu hátæknihúsi á fyrsta ársfjórðungi 2020. Þá á að afhenda Vilhelm Þorsteinsson, nýtt uppsjávarskip okkar, um mitt sumar 2020. Það eru spennandi tímar framundan“ segir Þorsteinn Már ennfremur í tilkynningunni.

„Samherji skilaði góðri rekstrarniðurstöðu á árinu 2018.  Árið var að sumu leyti sérstakt fyrir okkur. Þetta er fyrsta heila árið sem Samherji gerir ekki út neinn bolfiskfrystitogara frá Íslandi. Félagið hóf rekstur með einum frystitogara og þeir hafa í gegnum tíðina gegnt veigamiklu hlutverki í rekstri okkar þannig að þetta er mikil breyting á fyrirtækinu. Sjófrystingu á uppsjávarfiski lauk einnig á árinu með sölu á Vilhelm Þorsteinssyni EA sem hefur verið eitt fengsælasta skip Íslandssögunnar.

Búið er að einfalda samstæðu Samherja og er þetta fyrsta árið þar sem Samherji hf. heldur einungis utan um starfsemi okkar á Íslandi og í Færeyjum. Við höfum í gegnum árin gert miklar breytingar í rekstrinum, meðal annars til að takast á við breytingar á neysluvenjum neytenda og auknum kröfum þeirra. Með árvekni höfum við haldið stöðu okkar í fremstu röð meðal sjávarútvegsfyrirtækja í heiminum.  Allt útheimtir þetta meiri vinnu og eykur álag á starfsfólk.  Við höfum tekist á við þessar breytingar saman og náð árangri. Það er ekki sjálfgefið og fyrir það er ég þakklátur,“ segir Þorsteinn Már Baldvinsson.