Serrano Ísland ehf. hagnaðist um 39,8 milljónir króna í fyrra, samanborið við 12,5 milljónir króna árið áður og jókst því um 318% á milli ára.
Rekstrarhagnaður félagsins nam 52,5 milljónum króna, samanborið við 25,7 milljónir króna árið 2010, og jókst því um 213% á milli ára.
Eigið fé Serrano nam í árslok tæp um 15 milljónum króna en var neikvætt um 24,8 milljónir króna árið áður. Skuldir félagsins í árslok voru um 120 milljónir króna, en þar af námu skammtímaskuldir um 103 milljónum.