EBITDA sjávarútvegsfyrirtækja sem hlutfall af heildartekjum sjávarútvegs minnkaði milli áranna 2013 og 2014.  Þetta kemur fram í Hagtíðindum Hagstofunnar, en þar er fjallað um afkomu sjávarútvegsins.

Í fiskveiðum og -vinnslu lækkaði hlutfallið úr 26,7% í 24,3%, hækkaði í fiskveiðum úr 20,1% árið 2013 í 20,4% af tekjum árið 2014 og lækkaði í fiskvinnslu úr 17% í 14,2%. Hreinn hagnaður í sjávarútvegi nam 15% árið 2014 samanborið við 18,2% árið áður. Í fjárhæðum nam hagnaðurinn 36,3 milljörðum króna eftir að gjaldfærð hefur verið árgreiðsla að fjárhæð 22,3 milljarðar.

Sé miðað við hefðbundna uppgjörsaðferð er niðurstaðan sú sama 15% hagnaður 2014 eða 36,3 milljarðar, samanborið við 22,5% hagnað árið 2013. Heildareignir sjávarútvegs voru þá samkvæmt efnahagsreikningi tæpir 574 milljarðar króna. Þar af voru skuldur 389 milljarðar, en það gefur eigið fe upp á rúmlega 185 milljarða. Hlutfall eigin fjár er því rétt rúmlega 32%