Hagnaður Sjóvá á þriðja ársfjórðungi 2016 nam 858 milljónum. Hagnaður fyrirtækisins dregst því saman um 41% milli ára. Hagnaður þriðja ársfjórðungs í fyrra nam tæpum 1,3 milljarði. Á fyrstu níu mánuðum ársins hagnaðist Sjóvá um 1,6 milljarð samanborið við 2,7 milljarða árið áður.

Iðgjöld tímabilsins námu rúma 4 milljarða samanborið við 4,6 milljarða á sama tímabili í fyrra. Þar af voru eigin iðgjöld 3,7 milljarðar á þriðja ársfjórðungi samanborið við 3,45 milljarða.

Fjárfestingartekjur á þriðju ársfjórðungi voru 789 milljónir samanborið við 1,4 milljarð á sama tímabili í fyrra.

Tjón tímabilsins hjá Sjóva nam 2,8 milljörðum samanborið við 2,7 milljarða á þriðja ársfjórðungi í fyrra.

Ávöxtun eignasafns félagsins 2,2%.

Haft er eftir Hermanni Björnssyni, forstjóra Sjóva, að afkoma þriðja ársfjórðungs hafi verið góð, sem helgast aðallega af ágætum fjárfestingartekjum.

„Sögulega séð hefur þriðji ársfjórðungur komið best út, þar sem kostnaður er lægri og tjón alla jafna minni en í öðrum fjórðungum. Sé litið til afkomu fyrir fyrstu 9 mánuði ársins verður hún í heildina að teljast góð þar sem tjónahlutfall fer lækkandi. Væntingar eru um að aðgerðir sem gripið hefur verið til færi afkomu ársins nær þeim horfum sem birtar voru í upphafi árs, þ.e. að samsett hlutfall verði á bilinu 98-100% og að afkoma fyrir skatta verði 2 til 2,5 milljarðar“, segir Hermann í fréttatilkynningu frá Sjóvá.