Skeljungur hagnaðist um 444 milljónir á þriðja ársfjórðungi ársins en á sama tíma í fyrra nam hagnaður félagsins 445 milljónum króna. Hagnaður á hlut var 0,21 króna og hélst óbreyttur á milli ára, en framlegð nam 1.965 milljónum króna og lækkaði um 2,6% frá þriðja ársfjórðungi 2016.

Rekstrarkostnaður lækkaði um 21 milljón króna milli ára eða um 1,8% en EBITDA hagnaður félagsins nam 854 milljónum króna sem er um 2,4% lækkun frá sama tímabili í fyrra. EBITDA framlegðin var 43,4% og helst óbreytt milli ára.

Hagnaður eftir skatta nam 444 milljónum króna samanborið við 445 milljónir króna á sama tímabili í fyrra, en eigið fé í lok tímabilsins nam 8.281 milljónum króna og eiginfjárhlutfall var 37,1%. Bókfærð einskiptisgjöld vegna hagræðingar eru um 88 milljónir króna á þriðja ársfjórðungi.

Tæplega 1,2 milljarða hagnaður fyrstu 9 mánuði ársins

Þegar rekstrartölurnar fyrir fyrstu 9 mánaða ársins eru skoðaðar sést að hagnaður tímabilsins jókst um 6,1% milli ára og nam 1.172 milljónum króna. Nam hagnaður á hlut var 0,56 krónum en var 0,48 krónur á sama tímabili í fyrra.

EBITDA hagnaður nam 2.357 milljónum króna sem er 2,4% aukning frá sama tímabili í fyrra. EBITDA framlegð var 42,3% miðað við 40,4% í fyrra. Rekstrarkostnaðarhlutfall lækkaði og var 59,4% samanborið við 61,5% á síðasta ári.

Uppreiknuð arðsemi eigin fjár á ársgrundvelli var 20,8% samanborið við 20,7% yfir sama tímabil árið áður. Meðalgengi dönsku krónunnar var 16,1 íslenskar krónur, sem er 13,0% lækkun frá sama tímabili árið áður.

Horfur fyrir árið 2017

Í afkomuspá félagsins er gert ráð fyrir stöðugu gengi gjaldmiðla og stöðugu olíuverði. Breytingar á gengi íslensku krónunnar munu áfram hafa áhrif á rekstrarniðurstöður félagsins, sér í lagi gagnvart dönsku krónunni, vegna erlends hluta starfseminnar. Hendrik Egholm, forstjóri Skeljungs segist sáttur við niðurstöðu þriðja ársfjórðungs og rekstrarniðurstöðuna það sem af er ári.

„Það er afar ánægjulegt að greina frá því að félagið er að skila metafkomu í Færeyjum, þó svo hún sé ekki að skila sér jafnvel í krónum talið í ljósi styrkingar íslensku krónunnar,“ segir Hendrik sem segir hagnað samstæðunnar vera að aukast, en eins og Viðskiptablaðið sagði frá um daginn tilkynnti félagið nýlega um viðamiklar skipulagsbreytingar.

„Við stefnum að því að halda áfram á þessari braut og nýlega voru tilkynntar breytingar á skipuriti og starfsemi félagsins. Markmiðið með breytingunum er að einfalda reksturinn, samþætta starfsemi Skeljungs á Íslandi og í Færeyjum og gera æðstu stjórnendum betur kleift að vinna að framþróun samstæðunnar.

Vörumerkjum félagsins var fækkað og verða eldsneytisstöðvar fyrirtækisins nú reknar undir vörumerkjum Orkunnar, þar sem áhersla verður fyrst og fremst á að bjóða viðskiptavinum ódýrt bensín á vel staðsettum stöðum víðsvegar um landið."

Breytingarnar kosta 210 milljónir í heildina

Einskiptiskostnaður vegna breytinganna nema um 110 milljónum króna og að áætluð kostnaðarlækkununin nemi um 160 milljónum króna á ársgrundvelli. Á þriðja ársfjórðungi féll til kostnaður vegna þessa að fjárhæð um 88 milljónir króna, en það sem eftir stendur mun falla til á fjórða ársfjórðungi.

Áætlað er að fjárfesting vegna þess að Skeljungsvörumerkið verður lagt niður verði um 100 milljónir króna og falli til á næstu 3-5 mánuðum. Orkan mun bjóða neytendum upp á lægra verð og gert er ráð fyrir að selja sambærilegan fjölda lítra á nýjum stöðvunum við mat á áhrifum á félagið. Áætlað er að heildaráhrif ofangreindra breytinga skili yfir 200 milljónum króna samtals á ársgrundvelli.

Áður birt áætlun gerði ráð fyrir að EBITDA ársins yrði á bilinu 2.550-2.750 og að fjárfestingar yrðu á bilinu 750-850 m.kr. Að teknu tilliti til ofangreinds, þá gerir félagið ekki breytingu á afkomuspám fyrir árið og áætlunum um fjárfestingar ársins.