Tryggingamiðstöðin hagnaðist um 527 milljónir króna á þriðja ársfjórðungi en á sama tíma í fyrra nam hagnaðurinn 714 milljónum króna. Hagnaður fyrir skatta var 630 milljónir króna. Framlegð af vátryggingastarfsemi var 146 milljónir króna en á sama tímabili í fyrra nam hún 38 milljónum króna. Þetta kemur fram í tilkynningu frá félaginu.

Fjárfestingatekjur á tímabilinu námi 612 milljónum króna en voru 785 á þriðja fjórðungi árið 2013. Ávöxtun fjárfestingaeigna var lakari á fjórðungnum og var 2,4% en 3,2% í fyrra. Samsett hlutfall var 95% en var 98,7% á sama tímabili í fyrra. Eigin iðngjöld drógust saman um 3,4% á milli ára. Eigin tjón lækkuðu um 9,5% á milli ára og rekstrarkostnaður hækkaði um 4,2%.

Arðsemi eigin fjár tímabilsins á ársgrunni var 18,8% en á sama tímabili í fyrra 26,3%. Handbært fé frá rekstri var neikvætt um 45 milljónir króna en var í fyrra 578 milljónir.

„Ég er mjög sáttur við niðurstöðu fjórðungsins. Samsett hlutfall var 95% þrátt fyrir að mikill kostnaður félli til vegna stórbrunans í Skeifunni 11 en handbært fé frá rekstri var neikvætt á tímabilinu vegna hans. Við erum einnig að sjá mikilvægar vísbendingar um vöxt á tímabilinu þar sem tæplega 16% hækkun varð á bókfærðum iðgjöldum milli ára.Sá vöxtur er drifinn áfram af vátryggingastarfsemi okkar erlendis og skýrir hann hækkun rekstrarkostnaðar milli ára á þriðja ársfjórðungi. Vátryggingastarfsemin erlendis gengur vel og er hlutdeild hennar í eigin iðgjöldum félagsins nú orðin um 11%. Afkoma af 2 erlendum viðskiptum er á sama tíma góð sem bendir til þess að sú stefna sem við höfum markað okkur í áhættutöku (e. underwriting) sé skynsamleg. Ávöxtun helstu eignaflokka er sem fyrr góð í samanburði við helstu viðmið. Ávöxtun eignasafns félagsins á fjórðungnum var 2,4% eða sem nemur 9,8% á ársgrundvelli. Góð ávöxtun óverðtryggðra ríkisskuldabréfa og hlutabréfaeigna skýra góða afkomu fjórðungsins auk þess sem gjaldeyrismunur var jákvæður,” er haft eftir Sigurði Viðarssyni, forstjóra TM, í tilkynningu.