UPS - United Parcel Service
UPS - United Parcel Service
Hagnaður United Parcel Service hækkaði á 2. ársfjórðungi um 26% milli ára.  Hagnaðurinn á tímabilinu var 1,06 milljarðar dala en var 845 milljónir dala á sama tíma í fyrra.

Mestur vöxtur var í Kína.  Einnig var vöxtur í Evrópu en umsvifin stóðu í stað í Bandaríkjunum.

Pakkaflutningar hafa tekið að nýju við sér. Fyrirtækið varar við að útlitið framundan sé svolítlið óskýrara en áður vegna ástandsins í efnahagsmálum í Bandaríkjunum og Evrópu.