Hagnaður Visa Inc. var 883 milljónir dala á 3. ársfjórðungi sem lauk 30. júní en reikningsárið er 1. september til 30. ágúst ár hvert.

Er það 23% aukning á hagnaði af reglulegri starfssemi, en þegar tekið er tillit til óreglulegra tekna jókst hagnaðurinn um 40%.

Visa tilkynnti einnig í dag áætlun um að kaupa til baka hlutabréf að nafnvirði milljarðs dala.  Um er að ræða A hlutbréf.