Hagnaður Fjarskipta, móðurfélags Vodafone, nam 476 milljónum króna á þriðja ársfjórðungi og jókst um 15% frá sama tíma í fyrra. Á fyrstu níu mánuðum ársins hefur félagið því hagnast um 821 milljón króna sem er 27% aukning. EBITDA hagnaður ársfjórðungsins jókst um 4% og nam 1.023 milljónum króna en þetta er í fyrsta skipti sem EBITDA hagnaður fer yfir milljarð á fjórðungi í sögu félagsins. Þetta kemur fram í tilkynningu frá félaginu.

Framlegð jókst um 7% á tímabilinu og kostnaðarverð lækkaði um 10%. Tekjur drógust saman um 2% á fjórðungnum en á fyrstu níu mánuðum ársins aukast þær um 1%. Eiginfjárhlutfall félagsins er 53%.

"Niðurstaða þriðja ársfjórðungs Fjarskipta er ánægjuleg. EBITDA-hagnaður félagsins fór í fyrsta skipti yfir milljarð á ársfjórðungi og hefur aldrei verið meiri í sögu félagsins. Góð niðurstaða skýrist helst af markvissum kostnaðaraðgerðum og tekjustýringu. Tekjur voru stöðugar en á sama tíma tókst með markvissum aðgerðum að lækka kostnaðaverð sem bætir framlegð umtalsvert. Hagnaður er einnig að aukast samhliða lægri afskriftum og sterkari efnahag félagsins og hefur sömuleiðis aldrei verið betri. Mörg mikilvæg skref voru stigin í lykilverkefnum félagsins á tímabilinu. Fjárfestingar halda áfram að byggja undir öfluga þjónustu Vodafone. Háhraðaþjónustusvæði félagsins stækkar áfram með fjölgun 3G og 4G senda um allt land, einnig á haf út til sjófarenda, sem þegar er farið að skila sér í fjölgun viðskiptavina í sjávarútvegi. Uppbygging endurbætts sjónvarps- og dreifikerfis er vel á veg komin og á áætlun. Nýtt dreifikerfi mun gefa tugþúsundum áhorfenda kost á stóraukinni sjónvarpsþjónustu. Þá opnaði endurbætt verslun Vodafone á Akureyri formlega á dögunum, sú fyrsta hér á landi samkvæmt nýrri forskrift Vodafone Global. Á ársfjórðungnum var jafnframt lögð lokahönd á nýja stefnu fyrir félagið auk þess sem áfram var unnið að styrkingu innviða og öryggismála. Allt framangreint eru mikilvæg verkefni sem styrkja félagið til framtíðar," segir Stefán Sigurðsson, forstjóri félagsins.