Hagnaður Fjarskipta (Vodafone) á fyrsta ársfjórðungi ársins 2017 nam 201 milljón króna samanborið við 198 milljón króna hagnað á sama tímabili í fyrra.

Heildartekjur Fjarskipta á tímabilinu námu 3.141 milljónum króna samanborið við 3.295 milljónum árið áður. Það er tekjulækkun um 5%. Kostnaðarverð seldra vara lækkaði sömuleiðis um 3% miðað við sama tíma í fyrra.

EBITDA hagnaður félagsins nam 719 milljónum króna sem er hækkun um 8% milli ára. EBITDA hlutfall var 22,9% í lok fyrsta ársfjórðungs. Eiginfjárhlutfall nam 48,1% í lok tímabilsins og var handbært fé frá rekstri 190 milljónir króna. Eigið fé Vodafone í lok tímabilsins nam 7.203 milljónum króna. Skuldir Vodafone námu 7.780 milljónum í lok tímabilsins.

Búast við svörum Samkeppniseftirlitsins seinna á þessu ári

Stefán Sigurðsson, forstjóri Vodafone, bendir á að uppgjör fyrsta fjórðungs skilar 8% aukningu í EBITDA rekstarhagnaði frá fyrra ári þar sem hagræðingaraðgerðir félagsins hafa meðal annars tilætluð áhrif að hans sögn.

„Af starfseminni á Íslandi er enn meiri viðsnúningur þar sem EBITDA vex um 14% á milli ára.  Sjónvarpstekjur vaxa um 8% frá fyrsta ársfjórðungi 2016 í tengslum við sjónvarpsþjónustu félagsins á Íslandi en þrátt fyrir jákvæða þróun í heildarfjölda farsímaviðskiptavina lækka heildartekjur frá fyrra ári einkum vegna verðlækkana árið 2016. Tekjur farsíma á Íslandi eru farnar að sýna viðsnúning og gert er ráð fyrir að sú þróun geti orðið greinilegri í niðurstöðum annars ársfjórðungs. Sama á við internettekjur, þar sem lækkun á tekjum af interneti tengist aðallega heildsöluviðskiptavinum sem hættu í viðskiptum á fyrsta ársfjórðungi 2016.“

Hann bætir við að „Af lækkun tekna eiga Færeyjar helming lækkunar sem tengist verðsamkeppni á þeim markaði á árinu 2016. Unnið er að fjölþættum aðgerðum til að bæta stöðuna í Færeyjum og meðal annars eru kostnaðaraðgerðir byrjaðar að skila sér í mótvægi á fjórðungnum sem tengjast fækkun stöðugilda sem ráðist var í undir lok síðasta árs.

Í tengslum við kaup á 365 miðlum hf. hefur samrunatilkynningu verið skilað til Samkeppniseftirlitsins og búast má við svörum á seinni hluta ársins. Áætlarnir gera ráð fyrir að sameinað félag verði með um 62% hærri tekjur, 54% hærri EBITDA og 85% hærra frjálst fjárflæði en núverandi rekstur Fjarskipta.“

„Félagið mun flytja í framtíðarhöfuðstöðvar sínar í júní að Suðurlandsbraut 8 en hönnun hússins leggur grunn að framúrskarandi vinnuumhverfi. Unnið er eftir BESTA hugmyndafræði sem hefur velferð starfsfólks í fyrirrúmi á sama tíma og fyrirtækið nær fram hagræði í húsnæðismálum,“ segir hann að lokum.