Hagnaður Volkswagen hefur aukist um 7% á seinustu sex mánuðum. Bílaframleiðandinn hefur nú skilað 7,5 milljarða evra hagnaði það sem af er ári. Fyrirtækið hefur þurft að ráðast í miklar sparnaðaraðgerðir í kjölfar svika á útblástursprófunum. Volkswagen hefur lagt 16,2 milljarða dala til hliðar, til þess að koma til móts við neytendur sem eiga rétt á skaðabótum.