Hagnaður þýska bílaframleiðandans Volkswagen var 4,67 milljarðar evra í 2. ársfjórðungi.  Á sama tímabili í fyrra nam hagnaðurinn 1,25 milljarði evra.  Hagnaður þrefaldaðist því á milli ára.

VW, sem selur flesta bíla allra framleiðanda í Evrópu,  mun kynna margar nýjar gerðir af bílum á seinni hluta ársins.

Þrátt fyrir gott uppgjör lækkaði gengi félagins í dag um 3,3% í kauphöllinni í Frankfurt. Um tíma var lækkunin tæp 6%. Er það vegna orða forsvarsmanna VW að blikur séu á lofti í efnahagslífinu.