Rekstrarfélag pítsustaðarins Devitos hagnaðist um rúmar 5,7 milljónir króna á árinu 2012 og er það töluverð aukning frá árinu áður þegar félagið hagnaðist um rúma 2,1 milljón króna. Þá námu eignir félagsins tæpum 91 milljón króna og eigið fé er tæp 61 milljón króna.

Fram kemur í ársreikningi félagsins að á árinu 2012 hafi að jafnaði sex starfsmenn starfað hjá félaginu, að launagreiðslur hafi numið samtals rúmum 28 milljónum króna og að í lok ársins hafi allir hlutir í félaginu verið í eigu Ali Louzir.

Pítsustaðurinn Devitos er til húsa við Hlemm í Reykjavík.