Fyrir opnun markaða í dag nýtti Bjarni Ármannsson, forstjóri Glitnis, rétt sinn samkvæmt kaupréttarsamningi frá 1. mars 2002 við bankann að því er varðar 15.000.000 hluti á verðinu 2,81 og seldi bankanum aftur á verðinu 28,2 að því er kemur fram í tilkynningu til Kauphallarinnar. Bjarni hagnaðist um 380 milljónir króna á viðskiptunum.

Eftir viðskiptin á Bjarni Ármannsson enga kauprétti í bankanum, en hann á 521.560 hluti og aðilar fjárhagslega tengdir honum eiga 233.420.693 hluti sem jafngilda um 6,5 milljarði króna miðað við gengið 28,2. Fjöldi eigin hluta í eigu Glitnis banka hf. er óbreyttur eftir viðskiptin eða 156.473.728 hlutir.

Gengi bréfa Glitnis lækkaði um 2,8% í dag.