Sala Össurar á þriðja fjórðungi ársins 2005 nam 44,6 milljónum Bandaríkjadala (2,8 milljörðum íslenskra króna) samanborið við 30,7 milljónir á fyrra ári. Sala jókst um 45% í Bandaríkjadölum.

Á þriðja ársfjórðungi eru gjaldfærðar 5,7 milljónir Bandaríkjadala í tengslum við kaupin á Royce Medical Holding Inc. og fleira.

Hagnaður þriðja ársfjórðungs var 812 þúsund dalir (52 milljónir íslenskra króna). Að teknu tilliti til óvenjulegra liða var hagnaður 4 milljónir dala (253 milljónir íslenskra króna).

Hagnaður á hlut (EPS) var 0,26 bandarísk sent samanborið við 1,47 sent á hlut á þriðja ársfjórðungi 2004. Að teknu tilliti til óvenjulegra liða var hagnaður á hlut 1,26 sent á hlut.