Hagnaður var af resktri Medcare flögu á þriðja ársfjórðungi nam 350 þúsund dollurum samanborið við 264 þúsund dollara tap á þriðja ársfjórðungi í fyrra. Tap var hins vegar af rekstri félagsins á fyrstu níu mánuðunum og nam það 1.187 þúsund dollara. Á sama tímabili í fyrra nam tapið 358 þúsund dollurum.

Rekstrartekjur námu 8 milljónum dala á þriðja ársfjórðungi sem er 66% aukning frá þriðja ársfjórðungi 2003, að því er segir í tilkynningu frá félaginu.

?Þriðji ársfjórðungur er fyrsti heili ársfjórðungurinn sem inniheldur rekstur SleepTech í samstæðunni. Tilkoma SleepTech og breyttar áherslur og aðgerðir í rekstri hafa skilað sér í bættri afkomu. Gert er ráð fyrir að breytt skipulag og aðkoma nýrra stjórnenda að rekstri félagsins í Bandaríkjunum muni bæta sölu- og markaðsstöðu félagsins á þeim markaði á næstu ársfjórðungum.