Alfesca [ A ] hagnaðist um 1,8 milljón evrur á þriðja ársfjórðungi, samanborið við 1,3 milljónir evra á sama tímabili í fyrra.

„Afkoma á þriðja ársfjórðungi er viðunandi þegar tekið er tillit til erfiðra markaðsaðstæðna og sýnir afkoman enn og aftur styrk viðskiptamódels Alfesca," segir Xavier Govare, forstjóri Alfesca í fréttatilkynningu.

„Erfiðar markaðsaðstæður orsökuðust af samspili neikvæðra og óvæntra þátta en hvort tveggja hafði áhrif á afkomuna. Þar á meðal eru hækkanir síðustu mánaða á hrávöruverði sem hafði umtalsverð áhrif á hráefniskostnað félagsins.

Þá virðast óvissa á sviði efnahagsmála og verðhækkanir á neytendavörum hafa hægt á útgjöldum heimilanna. Að auki hafði veiking pundsins gagnvart evru neikvæð áhrif á afkomu rekstrarins í Bretlandi. Þrátt fyrir ýmis neikvæð áhrif er afkoman fyrstu níu mánuði ársins og á 3. ársfjórðungi hughreystandi þar sem áframhald hefur orðið á arðbærum vexti samstæðunnar. Fjölbreytt vöruúrval og góð sala innan laxa- og rækjustoða félagsins vó upp laka sölu innan hinna tveggja stoða rekstrarins, annars vegar andaafurða og hins vegar blini og smurvara.

Vöxtur félagsins á 3. ársfjórðungi hefur verið arðbær en EBITDA jókst um 20,3% samanborið við sama tímabil í fyrra þrátt fyrir óvenjulega hækkun hráefniskostnaðar sem hafði neikvæð áhrif á ákveðna þætti rekstrarins. Nýlega var tilkynnt um sölu norska fisksölufyrirtækisins Christiansen Partner en rekstur þess var ekki í samræmi við yfirlýst markmið félagsins um framleiðslu virðisaukandi matvæla. Ákveðið var að hætta viðræðum um kaup á breska matvælafyrirtækinu Oscar Mayer sem framleiðir tilbúna rétti. Var það gert vegna hækkunar hráefnisverðs og erfiðra skilyrða á markaði fyrir tilbúin matvæli sem hafði neikvæð áhrif á afkomu félagsins.

Í ljósi áhættunnar þóttu fyrirhuguð kaup ekki skapa virðisauka fyrir hluthafana auk þess að stefna góðum árangri síðastliðinna ára í hættu. Þrátt fyrir þessa ákvörðun höldum við áfram að undirbúa tilurð fimmtu stoðarinnar undir rekstri félagsins. Hins vegar var lokið við kaupa ítalska dreifingarfyrirtækið D&F sem styrkja mun og flýta þróun viðskipta okkar á Ítalíu.

Í heildina eru horfurnar í rekstri Alfesca góðar. Við lítum björtum augum til framtíðar þar sem Alfesca hefur brugðist jákvætt við þeim erfiðu aðstæðum sem búist er við að vari enn um sinn," segir Xavier Govare.