Berkshire Hathaway, trygginga- og fjárfestingafélag Warren Buffett, skilaði 2,88 milljarða Bandaríkjadala (239 milljarða íslenskra króna) hagnaði á 2. ársfjórðungi. Hagnaður félagsins á sama tímabili fyrir ári síðan nam 3,12 milljörðum dala og minnkaði hagnaðurinn því um 8% milli ára.

Hagnaðurinn var nokkuð meiri en meðalspá greiningaraðila gerði ráð fyrir.