Hagnaður Bayerische Motoren Werke fyrir skattar er minni en spár gerðu ráð fyrir. Ástæða þessa er sögð minni hagnaður í Bandaríkjunum vegna veikrar stöðu Bandaríkjadals og hækkandi hráefnisverðs.

Um 25% af hagnaði BMW kemur frá Bandaríkjunum og olli veik staða Bandaríkjadals því að hlutabréf í fyrirtækinu lækkuðu mikið í dag og hefur lækkunin ekki verið meiri á einum degi í þrjá mánuði.