Hagnaður bandaríska flugvélaframleiðandans Boeing á fyrsta ársfjórðungi nam um 1,2 milljarði dala (um 88,5 milljarða íslenskra króna), sem gerir 1,62 dali á hvern hlut.

Hagnaður félagsins eykst um 43% milli ára en á sama tíma í fyrra nam hagnaður Boeing um 877 milljónum dala eða 1,13 dölum á hvern hlut.

Í tilkynningu frá félaginu kemur fram sala á farþegavélum hefur aukist verulega en sala á þyrlum og hernaðartækjum hefur dregist saman.