Hagnaður Byggðastofnunar fyrstu sex mánuði ársins nam fjórum milljónum króna en var 194 milljónir króna á sama tíma fyrir ári.

Hreinar vaxtatekjur námu 86 milljónum króna, miðað við neikvæðar vaxtatekjur upp á 49 milljónir króna á sama tímabili 2006.

Rekstrartekjur námu 166 milljónum króna og rekstrargjöld að meðtölum framlögum í afskriftarreikning útlána og niðurfærsla hlutafjár nam 162 milljónum króna.

Eigið fé Byggðastofnunar nam milljarði eða 9,26% af niðurstöðu efnahagsreiknings. Eiginfjárhlutfall stofnunarinnar samkvæmt lögum um fjármálafyrirtæki er 9,03%. Samkvæmt ákvæðum laga nr. 161/2002 um fjármálafyrirtæki skal eigið fé lánastofnunar á hverjum tíma eigi nema lægri fjárhæð en sem svara 8% af áhættugrunni.

Varanlegir rekstrarfjármunir Byggðastofnunar voru 5,36% af eigin fé.

Eignir Byggðastofnunar í lok júní 2007 námu 11,4 milljörðum króna, þar af námu útlán 8,9 milljörðum króna og hafa lækkað um 537,6 milljónir króna frá lok árs 2006.

Skuldir Byggðastofnunar námu 10,3 milljörðum króna og hafa hækkað um 813.282 þúsund króna frá lok árs 2006.
Hlutverk Byggðastofnunar er að vinna að eflingu byggðar og atvinnulífs á landsbyggðinni. Stofnunin undirbýr, skipuleggur og fjármagnar verkefni og veitir lán með það að markmiði að treysta byggð, efla atvinnu og stuðla að nýsköpun í atvinnulífi. Byggðastofnun fylgist einnig með þróun byggðar í landinu og vinnur að byggðaáætlun í samvinnu við Iðnaðarráðherra.