Tekjur tölvufyrirtækisins CCP námu 46,5 milljónum bandaríkjadala á síðasta ári eða tæpum sex milljörðum króna. Hagnaður félagsins nam rúmlega fimm milljónum dala eða ríflega 600 milljónum króna. Árið á undan var hagnaður tæplega þrjár milljónir dala og jókst því um 66%. Hagnaður fyrir skatta nam 5,2 milljónum dala. Eignir félagsins námu 44 milljónum dala.
Fyrir aðalfundi félagsins á morgun liggur tillaga um að greiða ekki arð vegna síðasta árs. CCP á og rekur tölvuleikinn Eve Online og hefur af honum áskriftartekjur upp á 41,7 milljón dala.
Hjá félagsinu starfa 353 í starfsmenn á skrifstofum þess í Sanghai, Reykjavík og Atlanta. Starfsmönnum hafði fjölgað um 92 á milli ára. Laun og launatengdur kostnaður nam 18,5 milljónum dala og 7,3 milljónir voru bókfærðar sem rannsóknarkostnaður að því er kemur fram í reikningi félagsins sem liggur frammi í Kauphöllinni.
Hluthafar félagsins eru nú 119 en voru 99 í upphafi árs. Stærsti hluthafinn er NP ehf., sem er í eigu Novators, með 34% hlut. Teno Investment er með 17,3% og Reynir Harðarson með 11,4%.