Hagnaður Disney á 2. fjórðungi jókst um 8,5% borið saman við sama tímabil á árinu 2007. Góð afkoma sjónvarpsstöðva fyrirtækisins átti sinn þátt í góðri afkomu, einkum ESPN.

Hagnaður Disney nam 1,28 milljörðum Bandaríkjadala á fjórðungnum, eða 66 sentum á hlut, borið saman við 1,18 milljarða, 57 sent á hlut, árið 2007.

Hagnaðurinn var meiri en spáð hafði verið en meðalspá greiningaraðila gerði ráð fyrir 61 senta hagnaði á hlut.