Hagnaður eBAY á fyrsta ársfjórðungi jókst um 28% og nam 256 milljónum dollara. Velta félagsins nam einum milljarði dollara og munaði þar mestu um verulega söluaukningu á alþjóðlegum vettvangi. Er nú svo komið að sala félagsins á alþjóðlegum vettvangi er við það að fara framúr sölu á heimamarkaði félagsins í Ameríku.