Hagnaður af rekstri SPRON samstæðunnar eftir skatta var 4.690 milljónum króna á fyrstu þremur mánuðum ársins og jókst um 318% frá sama tímabili síðasta árs. Arðsemi eigin fjár eftir skatta var 54,0% á ársgrundvelli segir í frétt félagsins.


Hreinar rekstrartekjur námu alls 6.714 milljónum króna sem er 203% aukning frá sama tímabili síðasta árs. Vaxtamunur sparisjóðsins er 1,0%. Niðurstaða efnahagsreiknings var 194.151 millj. kr. í lok mars 2007 og hafa heildareignir hækkað um 5,2% frá áramótum.


?Afkoma SPRON er sterk á fyrsta ársfjórðungi og er hagnaður eftir skatta 4,7 milljarðar króna sem er næst besta
afkoma SPRON á einum ársfjórðungi í 75 ára sögu fyrirtækisins. Lögð hefur verið áhersla á að fjölga afkomueiningum til þess að renna enn styrkari stoðum undir tekjustreymi fyrirtækisins og gekk rekstur dótturfélaga SPRON, Frjálsi fjárfestingarbankinn, Netbankinn og SPRON verðbréf vel á tímabilinu. Ennfremur skila hlutdeildarfélög og fjárfestingar SPRON góðri arðsemi. Eigið fé SPRON er 30,5 milljarðar króna og heildareignir samstæðunnar nema rúmlega 194 milljörðum króna. Vaxtamunur sparisjóðsins var 1,0% og lækkuðu hreinar vaxtatekjur um 17% á tímabilinu.  Jafnframt voru vanskil í sögulegu lágmarki. Rekstrarhorfur félaga í samstæðu SPRON á árinu eru jákvæðar og allar forsendur til þess að rekstur SPRON haldi áfram að dafna," er haft eftir Guðmundi Haukssyni, sparisjóðsstjóra í tilkynningu.?

Heildarútlán til viðskiptamanna SPRON námu 134.536 milljónum króna í lok mars og hækkuðu um 4,9% frá áramótum. Heildarinnlán SPRON námu alls 58.336 milljónir króna og hækkuðu um 3,1% frá áramótum. Innlán sem hlutfall af útlánum til viðskiptamanna námu 43%.  Eigið fé í lok mars nam 30.516 milljónum króna.


Eiginfjárhlutfall (CAD) SPRON samstæðunnar í lok ársins var 11,8%. Lágmarkshlutfall samkvæmt lögum
er 8,0%. Eiginfjárþáttur A er 25,8%. Árshlutareikningurinn er birtur í samræmi við alþjóðlegar reglur um gerð samstæðureikningsskila (IFRS).