Hagnaður Festingar nam 43 milljónum króna á fyrstu sex mánuðum ársins. Festing er sérhæft fasteignafélag stofnað af Keri fyrir réttu ári síðan. Meginhluti núverandi fasteigna félagsins eru rekstrartengdar fyrrum eignir Olíufélagsins ehf. en stofnfé félagsins samanstóð af þeim ásamt eigin fé. Alls er um að ræða 83 fasteignir og var bókfært verð þeirra rúmir 3,5 milljarðar króna.

Samkvæmt sjóðstreymi árshlutareikningsins var veltufé frá rekstri rúmar 184 milljónir króna. Handbært fé frá rekstri nam rúmum 87 milljónum króna.

Ráðgert er að efnahagur Festingar ehf. stækki verulega á síðari árshelmingi og ef fyrirætlun stjórnar gengur eftir má áætla að heildarvelta félagsins á ársgrundvelli muni nema u.þ.b. 1,1 milljarði króna í árslok.