Samkvæmt árshlutareikningi Frjálsa fjárfestingarbankans hf. fyrir fyrstu sex mánuði ársins 2008 nam hagnaður samstæðu bankans 146 milljónum króna eftir skatta samanborið við 1.035 milljónir króna fyrir  sama tímabil í fyrra. Arðsemi eigin fjár var 5,1%.

Þetta kemur fram í tilkynningu bankans til Kaupkallarinnar.

Þá kemur einnig fram að hagnaður móðurfélags, Frjálsi fjárfestingarbankinn, nam 280 milljónum króna eftir skatta á tímabilinu meðan 134 milljóna króna tap var á rekstri dótturfélags bankans.

„Tap dótturfélags skýrist einkum af auknum vaxtagjöldum vegna hás vaxtastigs og vegna veikingu íslensku krónunnar gagnvart erlendum myntum.  Meginverkefni dótturfélags Frjálsa fjárfestingarbankans eru fjárfesting og útleiga fasteigna,“ segir í tilkynningunni.

Hreinar vaxtatekjur samstæðunnar námu 188 milljónum króna samanborið við 323 milljónir króna fyrir sama tímabil 2007.  Vaxtamunur var 0,5% samanborið við 1,1% árið 2007.

Þjónustutekjur samstæðu  námu 57 milljónum króna samanborið við 62 milljónir króna fyrir sama tímabil 2007 og aðrar rekstrartekjur lækka um 76% og námu 275 milljónum króna samanborið við 1.158 milljónum króna 2007.

Kostnaðarhlutfall samstæðu var 51% en var 15% árið 2007.  Launakostnaður hækkar um 9% frá sama tímabili 2007  og var 141 milljónum króna og annar rekstrarkostnaður hækkar um 19% og var 109 milljónir króna.

Niðurstaða efnahagsreiknings samstæðu var 79.730 milljónir króna og hefur hækkað um 13% frá áramótum.  Heildarútlán og kröfur á lánastofnanir námu 75.935 milljónum króna í lok júní 2008 og hækkuðu um 19% frá áramótum.

Virðisrýrnun útlána nam 238 milljónum króna samanborið við 53 milljónum króna framlag á sama tímabili  2007.

Þá kemur fram að vanskilahlutfall er lágt og nam 0,44% af heildarútlánum í lok júní 2008.   Afskriftareikningur útlána í lok júní 2008 nam 593 milljónum króna sem er 0,8%  hlutfall af heildarútlánum.

Eigið fé samstæðu í lok tímabilsins nam 5.968 milljónum króna og hefur hækkað um 2,5% frá áramótum.    Eiginfjárhlutfall (CAD) samstæðu 30.6.2008  var 10,7%.

Fyrsta hálfa árið vonbrigði

Kristinn Bjarnason, framkvæmdastjóri Frjálsa segir í tilkynningu að ákveðin vonbrigði hafi verið með afkomu fyrstu sex mánuði þess árs.

„Árið fór vel af stað og afkoma fyrsta ársfjórðungs var góð og gaf fyrirheit um góða afkomu ársins,“ segir Kristinn í tilkynningunni.

„Óhagstæð kjör á vaxta- og gjaldmiðlasamningum á öðrum ársfjórðungi varð til þess að hreinar vaxtatekjur bankans lækkuðu mikið, en bankinn þarf að umbreyta á hverjum tíma umtalsverðri upphæð erlendrar mynteignar yfir í íslenskar krónur.“

Hann segir vanskil viðskiptavina vera lítil en merkja megi á síðustu mánuðum aukna greiðsluerfiðleika hjá viðskiptavinum.

„Til að gæta fyllstu varúðar vegna hugsanlegra útlánatapa var framlag í afskriftareikning útlána rúmlega þrefaldað á tímabilinu í samanburði við framlag sama tímabils árið 2007,“ segir Kristinn.

Fram kemur að af útlánasafni bankans eru um 15% nýbyggingalán tryggð með veð í húsnæði í byggingu eða með veð í nýjum fullbúnum íbúðum. 84% útlána eru tryggð með veð í íbúðar- eða atvinnuhúsnæði og 1% útlána eru tryggð með veð í bifreiðum.

„Þrátt fyrir veikingu krónu, verðbólguskot og lækkun húsnæðisverðs er ekki fyrirséð að bankinn verði fyrir neinum stórum útlánatöpum á næstu 12 mánuðum. Afkoma bankans ætti að verða viðundandi á árinu 2008 en markmið ársins er 15% arðsemi eigin fjár,“ segir Kristinn.