Hagnaður Heklu fasteigna ehf. nam 32,3 milljónum króna á fyrri helmingi árs, segir í tilkynningu til Kauphallar Íslands.

Heildartekjur Heklu fasteigna ehf. námu á tímabilinu 89,8 milljónum króna og rekstrargjöld námu 23,3 milljónum króna, EBITDA var því 66,5 milljónir króna.

Að teknu tilliti til matsbreytinga fjárfestingaeigna og fjármagnsgjalda nam hagnaður fyrir tekjuskatt 39,4 milljónir króna og hagnaður tímabilsins nam 32,3 milljónum króna.

Heildareignir Heklu fasteigna ehf. voru í júnílok 2006 bókfærðar á 1.97 milljarða króna. Heildarskuldir félagsins námu á sama tíma 1.83 milljörðum króna. Í júnílok 2006 var eigið fé Heklu fasteigna ehf. 133,3 milljónir króna og eiginfjárhlutfall 6,8%.