Hagnaður Icelandair Group eftir skatta á þriðja ársfjórðungi þessa árs var 4,4 milljarðar króna en var 2,1 milljarður á sama tíma í fyrra.

Heildarvelta félagsins var 41,5 milljarðar króna og jókst um 107% frá sama tíma í fyrra og hagnaður fyrir fjármagnsliði og skatta (EBITDA) var 6,2 milljarðar króna. Í fyrra nam EBITDA á asma tíma 3,7 milljörðum króna.

Handbært fé Icelandair Group í lok þriðja ársfjórðungs var 7,4 milljarðar króna, en var 3,8 milljarðar á sama tíma í fyrra. Eiginfjárhlutfall var 33,1% í lok fjórðungsins og eignir 101,5 milljarðar króna.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá félaginu.