Kaupþing hagnaðist um 9,6 milljarða króna á fjórða ársfjórðungi 2007, miðað við 7,6 milljarða króna spá greiningardeilda. Hagnaður á öllu árinu nam 70 milljörðum króna.

Tilkynning félagsins til Kauphallar Íslands er svohljóðandi: „Hagnaður hluthafa eftir skatta á árinu nam 70,0 mö.kr (85,3 ma.kr. árið 2006). Hagnaður hluthafa eftir skatta á fjórða ársfjórðungi nam 9,6 mö.kr. (18,1ma.kr. á sama tímabili 2006). Arðsemi eigin fjár á árinu var 23,5%.  Hagnaður á hlut á árinu var 95,2 kr. (127,1 kr. árið 2006). Hagnaður á hlut á fjórða ársfjórðungi var 13,4 kr. (26,1 kr. á sama tímabili 2006).

Hreinar vaxtatekjur á fjórða ársfjórðungi jukust um 60,3% á milli ára, námu 23,7 mö.kr.  Hreinar þóknanatekjur á fjórða ársfjórðungi jukust um 19,0% á milli ára, námu 14,1 ma.kr.  Gengistap í Fjárstýringu nam 11,6 mö.kr. á fjórða ársfjórðungi sem að mestu má rekja til lækkunar á gangvirði afleiðusamninga, skuldabréfaeigna og eignavarðra verðbréfa.

Heildareignir námu 5.347,3 milljörðum króna í lok ársins - jukust um 35,8% á föstu gengi á árinu, en um 31,9% í íslenskum krónum.  Innlán sem hlutfall af heildarútlánum til viðskiptavina jukust verulega á árinu eða úr 29,6% í upphafi árs í 41,8% við lok árs.

Í ljósi þess óróleika sem er á fjármálamörkuðum hafa Kaupþing banki og seljendur NIBC tilkynnt að þeir hafi ákveðið að falla frá fyrirhugaðri yfirtöku Kaupþings á NIBC.

Stjórn bankans mun leggja til við aðalfund að hluthöfum verði greiddar 14.810 milljónir króna í arð vegna ársins 2007 eða 20 krónur á hlut, sem svarar til 21% af hagnaði.

Hreiðar Már Sigurðsson, forstjóri

„Árið 2007 var gott hjá Kaupþingi. Framan af ári gekk sérlega vel en viðsnúningur á alþjóðlegum fjármálamörkuðum setti mark sitt á seinni hluta ársins. Arðsemi eigin fjár nam 23,5% sem verður að teljast vel viðunandi. Vel gengur í allri grunnstarfsemi bankans og hafa vaxtatekjur bankans aldrei verið hærri en nú á fjórða ársfjórðungi.

Óhagstætt rekstrarumhverfi leiðir til breyttra áherslna í rekstrinum og draga mun úr vexti efnahagsreiknings bankans. Áhersla stjórnenda er nú fyrst og fremst á að efla þóknanatekjur og ná fram hagræðingu í rekstrinum. Jafnframt er verið að breyta fjármögnun bankans með aukinni áherslu á innlán. Á fjórða ársfjórðungi var kynntur nýr innlánabanki á netinu, Kaupthing Edge en hann hefur þegar verið settur upp í fimm löndum. Það hefur meðal annars skilað sér í því að á síðustu fjórum mánuðum hafa tæplega 30 þúsund viðskiptavinir komið í innlánaviðskipti við bankann.

Kaupþing hefur gert samkomulag við J.C. Flowers um að hætta við kaupin á hollenska bankanum NIBC vegna óhagstæðra skilyrða á fjármálamörkuðum. Ekkert verður því af fyrirhuguðu hlutafjárútboði. Þessi niðurstaða er vonbrigði fyrir stjórnendur bankans en um leið styrkir þessi ákvörðun lausafjárstöðu Kaupþings, sem er nú mjög góð.““