Hagnaður belgíska bankans KBC tvöfaldaðist á þriðja ársfjórðungi, en þar kemur inn í sala á Banco Urquijo, sem seldist á 46 milljarða króna. Hagnaður bankans nam 99 milljörðum króna, samanborið við 50,5 milljarða á sama tímabili í fyrra. Greiningaraðilar höfðu spáð 96,5 milljarða krónu hagnaði.