Hagnaður varð af rekstri Kaupfélags Eyfirðinga á fyrri hluta ársins að upphæð 133 milljónum króna að teknu tilliti til reiknaðra skatta samkvæmt árshlutareiking félagsins. Hreinar rekstrartekjur námur 242 milljónum króna og rekstrargjöld voru 52 milljónir. Á tímabilinu veitti félagið styrki að upphæð 23 milljónir króna og nemur hagnaður fyrir reiknaða skatta því alls 167 milljónum króna.

Heildareignir félagsins nema 5.178 milljónum króna í lok fyrstu sex mánaða ársins og skuldir 823 milljónum á sama tíma. Bókfært eigið fé er 4.355 milljónir og eiginfjárhlutfall 84%.

Í tilkynningu frá félaginu kemur fram að í kjölfar stefnumótunarvinnu í upphafi árs hafi verið skerpt á hlutverki félagsins sem nú starfar sem fjárfestingarfélag sem vinnur í þágu eigenda sinna að eflingu atvinnulífs og búsetuskilyrða á starfssvæði sínu.

Á aðalfundi félagsins í maí síðastliðinn var ákveðið að breyta nafni félagsins í KEA svf. en auk þess var ákveðið að greiða eigendum félagsins um 40 milljónir króna í arð sem kemur til greiðslu í október.

Í tilkynningu kemur fram að Halldór Jóhannsson framkvæmdastjóri KEA er sáttur við uppgjörið með tilliti til aðstæðna á fjármála- og fjármagnsmörkuðum og þeirrar fjárfestingastefnu sem félagið fylgir. Sem stendur er mest af eignum félagsins bundið í eignaflokkum sem gefa fastar tekjursvo sem á peningamarkaði og í verðtryggðum skuldabréfum. Sú ávöxtun hefur gefið ágætlega af sér í samanburði við innlendan hlutabréfamarkað á þessu tímabili. Jafnfram segir Halldór í tilkynningunni að órói í kringum íslensku bankana frá því í vetur hafi haft mikil áhrif á veltu og umsvif fjárfestingaverkefna. Einnig kemur fram að stærri fjárfestingaverkefni félagsins gangi vel og undirliggjandi rekstur sé í samræmi við áætlanir.