Hagnaður KEA á síðasta ári nam 263 milljónum króna að teknu tilliti til reiknaðra skatta. Það er veruleg lækkun frá fyrra ári en þá nam hagnaðurinn 1.959 milljónum króna.
Veltufé til rekstrar nam 26 milljónum króna. Heildareignir félagsins nema 5.101 millj. kr. og skuldir og skuldbindingar 840 milljónir kr. Þar af tekjuskattsskuldbinding að fjárhæð 423 milljónir kr. Bókfært eigið fé er því 4.261 milljónum kr. og eiginfjárhlutfall 84%.
Á árinu seldi félagið eignarhlut sinni í Samherja hf. fyrir rúmar 2.000 milljónir kr. KEA á 45% hlut í Norðlenska matborðinu ehf. og jók við eignarhlut sinn í félaginu á árinu um 80 milljónir kr. KEA keypti 70% eignarhlut í Ásprenti Stíl ehf. auk þess að fjárfesta í nokkrum minni verkefnum.
KEA starfar sem fjárfestingarfélag sem vinnur í þágu eigenda sinna að eflingu atvinnulífs og búsetuskilyrða á starfssvæði sínu.
Á árinu breytti KEA skipulagi fjárefstingarstarfsemi félagsins og stofnaði í því skyni tvö dótturfélög, Hilding og Upphaf. Hildingur fjárfestir í þroskuðum fyrirtækjum þar sem vara og/eða þjónusta er þekkt en Upphaf fjárfestir í nýsköpunar- og framtaksverkefnum. Stofnhlutafé Hildings er 1.200 millj.kr. en 500 millj.kr. hjá Upphafi.
Á árinu veitti KEA margvíslega styrki til mennta-, menningar,- líknar- og æskulýðsstarfsemi að fjárhæð samtals um 58 milljónir kr. og eru þeir gjaldfærðir í uppgjörinu.
Félagsmenn í KEA eru 9.040 talsins í lok ársins 2005 og eiga allir jafnan hlut.