Hagnaður Kjalarvogs ehf. á fyrstu sex mánuðum ársins nam 63 milljónum króna, en á sama tíma í fyrra var hagnaðurinn 40 milljónir króna, segir í tilkynningu til Kauphallarinnar.

Rekstrartekjur tímabilsins námu 1.064 milljónum króna, vörunotkun 638 milljónir króna og annar rekstrarkostnaður 313 milljónir króna. Enginn starfsmaður starfaði hjá félaginu á tímabilinu, en Húsasmiðjan hf. sá um daglegan rekstur.

Heildareignir Kjalarvogs ehf. 30. júní 2006 voru bókfærðar á 619 milljónir króna. Heildarskuldir félagsins voru um 403 milljónir króna og þar af námu langtímaskuldir um 184 milljónum króna. Veltufjárhlutfall í lok tímabilsins var 2,91. Eigið fé Kjalarvogs ehf. nam 216 milljónum króna og eiginfjárhlutfall var 34,9%.

Tilgangur félagsins er innflutningur, heildsala og smásala á neytenda- og iðnaðarvörum, ásamt annarri starfsemi, sem af því leiðir. Ágætlega lítur út með reksturinn á næstu misserum. Útlit er fyrir áframhaldandi aukningu eftirspurnar og markaðsstaða félagsins er ágæt. Áætlanir eru um endurnýjun og fjölgun útsölustaða á næstunni til að mæta þessari auknu eftirspurn, segir í tilkynningunni.