Hagnaður allra viðskiptabankanna nema Landsbanka [ LAIS ] dróst saman á milli ára á fyrsta fjórðungi þessa árs. Hagnaður Glitnis [ GLB ] um 16%, Kaupþings [ KAUP ] um 9% og Straums [ STRB ] um 68%. Hagnaður Landsbanka jókst um 29%.

Hreinar vaxtatekjur bankanna jukust mikið milli ára; Glitnis um 74%, Kaupþings um 31%, Landsbanka um 40% og hreinar vaxtatekjur Straums rúmlega tvöfölduðust milli ára.

Rekstrarkostnaður Kaupþings hækkaði um 22% frá fyrsta fjórðungi ársins 2007, Glitnis um 60%, Landsbanka um 39% og kostnaður Straums nærri þrefaldaðist.