Hagnaður Landsbankans eftir skatta á fyrsta fjórðungi þessa árs var 17,4 milljarðar króna, miðað við meðalspá greiningardeilda Kaupþings og Glitnis upp á tæpa 22 milljarða króna.

Hagnaður fyrir skatta nam 19,7 milljörðum króna. Arðsemi eigin fjár eftir skatta var 44%. Eiginfjárhlutfall (CAD) var 11,0% í lok mars 2008.

Hreinar rekstrartekjur bankans námu 40,8 milljörðum króna, sem var nokkru undir spám, en meðalspá greiningardeildanna hljóðaði upp á 49 milljarða króna.

Grunntekjur samstæðunnar (vaxtamunur og þjónustutekjur) námu 26,2 milljörðum króna og hafa aukist um 27% miðað við fyrsta ársfjórðung 2007. Grunntekjur af erlendri starfsemi námu 15,1milljarði króna, eða 58% af grunntekjum samstæðunnar.

Gengismunur og fjárfestingatekjur námu 14,7 milljörðum króna (EUR 144m) samanborið við 8,8 milljarða króna á fyrsta ársfjórðungi 2007.

Heildareignir bankans námu 3.836 milljörðum króna (EUR 32,1bn) króna í lok mars 2008 í samanburði við 3.058 milljarða króna (EUR 33,4bn) í upphafi ársins. Heildareignir í EUR hafa lækkað samkvæmt þessu um 4% á ársfjórðungnum.

Í tilkynningu frá bankanum segir að lausafjárstaða hans sé sterk, en hún var um 8,2 milljarðar evra í lok mars 2008.

Viðbrögð Sigurjóns Þ. Árnasonar.

Viðbrögð Halldórs J. Kristjánssonar.